Aðalfundur 2006

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi

Haldinn á Players þann 11. maí 2006 klukkan 20:00

Dagskrá aðalfundar samkvæmt 11. grein laga klúbbsins

1) Kosning fundarstjóra og fundarritara

2) Stjórn leggur fram skýrslu fyrir yfirstandandi starfsár

3) Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga

4) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga

5) Lagabreytingar, löglega fram bornar

6) Kosning formanns til tveggja ára

7) Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára

8) Kosning tveggja varamanna til eins árs

9) Kosning endurskoðanda

10) Ákvörðun um árgjald

11) Önnur mál

 

1) Sigursteinn Brynjólfsson tók til máls og mælti með Guðmundi Péturssyni sem fundarstjóra og að fundarritari yrði Jón Óli Ólafsson. Voru þeir kosnir með lófa taki.

2) Sigursteinn greindi frá skýrslu stjórnar. Sigursteinn sagði núverandi starfsár hafa verið klúbbnum mjög gjöfullt og einnig fyrir Liverpool FC. Klúbburinn sendi frá sér lyklakippu sem minnti menn á hvað Liverpool FC hefði afrekað í Maí 2005.

Rauði Herinn hefur aldrei verið glæsilegri og hefur Hallgrímur Indriðason ritstýrt því af mikilli kostgæfni. Gunnar Gunnarsson hefur sett blaðið upp og hefur samstarf þeirra skilað sér í frábæru tímariti. Þakkaði Sigursteinn öllum þeim sem hafa komið að skrifum í Rauða Herinn fyrir sitt framlag og vel unnin störf.

Vefsíða klúbbsins liverpool.is hefur vaxið og dafnað og hefur sett sig á varanlega stall sem einn allra vinsælasta vefsíða landsins. Allir þeir sem hafa lagt hönd á plóg eiga þakkir skilið en það eru fjölmargir einstaklingar sem eiga hrós skilið fyrir vel unnin störf. Þakkaði Sigursteinn sérstaklega framlagi Sigfúsar Guttormssonar, Arngríms Baldurstjóra (ritstjóra) og Guðmundi Magnússonar (vefstjóri). Á vefsíðu klúbbsins er að finna vinsælasta fótboltaspjallborð landsins.

Liverpoolklúbburinn fór í 5 ferðir á liðnu tímabili og er ein enn framundan. Ekki hefur vantað áhugann á þessum ferðum klúbbsins og hafa allar þessar ferðir selst upp og það hratt. Klúbburinn hefur átt mjög gott samstarf við Úrval Útsýn. Það er líka ánægja að skýra frá því að einn af okkur, Sigurður Gíslason, fékk draum sinn uppfylltan að komast á leik með Liverpool. Ekki nóg með það, heldur sá Robbie Fowler nokkur um það að hann fengi að hitta alla leikmenn liðsins. Var ljóst fyrir ferðina að þetta yrði hans eina ferð, enda lést hann þann 15. apríl aðeins 27 ára gamall. Blessuð sé minning hans.

Árshátíðir klúbbsins voru að vanda haldnar hátíðlegar. Í þetta skipti voru þær ekki haldnar sama daginn og virtist það ekki hafa áhrif á aðsókn. Á árshátíðina mættu sjö erlendir gestir, sem voru í boði fasteignasölunnar Kletts. Á árshátíðinni fór fram eitt það magnaðasta uppboð og söfnuðust 1.5 milljón og var peningunum varið til góðgerðamála.

Jólasendingin er sú stærsta og var henni tekið afar vel, útbúin var húfa með merki klúbbsins. Í pakkanum fylgdi glæsilegt dagatal klúbbsins, sem Sigurður Reynisson hannaði að vanda, nælan góða og svo Rauði Herinn.

Þetta starfsár fer í sögubækur klúbbsins aldrei hafa verið svo margir virkir meðlimir en núna eru þeir i kringum 1700 talsins, sem er algjört met. Jósep Svanur hefur haldið utan um félagsskráninguna og stýrt því af mikilli röggsemi og hefur hann unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn.

Rekstur klúbbsins hefur aldrei verið betri, nánar er farið í reikninga félagsins á eftir. Ein lykillinn að góðum rekstri eru góðir samstarfsaðilar. Klúbburinn vill því þakka Players, Úrval Útsýn, GH Guðmundssonum, Bílaáttunni, Carlsberg, Reebok, Jóa Útherja, Íslandsprent og Leppin umboðinu kærlega samstarfið á þessu tímabili.

Sigursteinn þakkaði Kristmanni Pálmassyni kærlega fyrir hans störf fyrir klúbbinn en Kristmann hætti í stjórn klúbbsins á síðasta aðalfundi.

Sigursteinn mun nú stíga niður sem formaður á þessum tímapunkti en vildi þakka þeim Markúsi Einarssyni, Jóni Óla Ólafssyni, Sigurði Hjaltested, Jósep Svani Jóhannessyni, Sigurði Reynissyni, Hallgrími Indriðassyni, Gunnari Gunnarssyni og Benedikt Jóni Sigmundssyni fyrir frábært samstarf á þessu tímabili, sem og öllum öðrum sem komið hafa með einum eða öðrum hætti að starfi klúbbsins í gegnum tíðina.

3) Markús Einarsson lagi fram reikninga klúbbsins. Rekstrartekjur klúbbsins voru 7.713.531 krónur. Rekstrargjöld voru 6.916.788 krónur. Rekstrarhagnaður var því 796.743 krónur. En hagnaður af starfsemi klúbbsins var 888.087 krónur með fjármunatekjum. Aðrar tölur er að finna í ársreikning Liverpoolklúbbsins sem lagður var fram á aðalfundinum. Endurskoðandinn Birgir Grétar Haraldsson samdi ársreikninganna eftir bókhaldi klúbbsins og upplýsingum stjórnenda.

4) Fundarstjóri spurði fundarmenn hvort þeir vildu gera einhverja athugasemd varðandi skýrslu stjórnar eða reikninga klúbbsins. Svo reyndist ekki vera og var þá gengið til atkvæðagreiðslu um reikninga klúbbsins. Var hann samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

5) Engar lagabreytingar lágu fyrir þennan fund.

6) Sigursteinn lætur nú af störfum sem formaður Liverpoolklúbbsins. Fundarstjóri spurði hvort það væru einhverjar tillögur um framboð. Sigurður Hjaltested kom með tillögu um Jón Óla Ólafsson. Fleiri tillögur eða framboð komu ekki. Jón Óli Ólafsson er því sjálfkjörinn formaður Liverpoolklúbbsins til tveggja ára.

7) Kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára. Eftirtaldir aðilar buðu sig fram: Sigurður Reynisson, Sigurður Hjaltested, Markús Einarsson og Benedikt Jón Sigmundsson. Kjörseðlum dreift til fundargesta. Kosningu hlutu Sigurður Reynisson, 20 atkvæði, Siguður Hjaltested, 19 atkvæði, Markús Einarsson, 19 atkvæði. Benedikt Jón Sigmundsson hlaut 14 atkvæði.

7a) Vegna þess að Jón Óli Ólafsson var kosinn formaður klúbbsins losnar um eitt sæti meðstjórnanda til eins árs. Og því er nú kosið um meðstjórnanda til eins árs. Benedikt Jón Sigmundsson bauð sig fram. Ekkert mótframboð kom og telst hann því sjálfkjörinn.

8) Kosning tveggja varamanna til eins árs. Eftirtaldir aðilar buðu sig fram Arngrímur Baldursson, Bragi Brynjarsson og Brynjar Þór Elínarson. Arngrímur og Bragi stóðu upp og sögðu deili á sér. Brynjar Þór dróg framboð sitt til baka og sagði að tveir fyrrnefndu aðilar væru vel að því komnir að vera varamenn fyrir klúbbinn. Arngrímur og Bragi er því sjálfkjörnir sem varamenn.

9) Tillaga um að Birgir Grétar Haraldsson haldi áfram sem endurskoðandi Liverpoolklúbbsins. Fleiri tillögur komu ekki og því var hann sjálfkjörinn til eins árs.

10) Stjórn Liverpoolklúbbsins sér enga ástæðu til að þess að hækka árgjaldið og leggur til að árgjaldið fyrir komandi tímabil haldist óbreytt. Tillaga um óbreytt árgjald samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

11) Fundarstjóri sagði orðið laust og nú væri tíminn til þess að spyrja stjórnarmenn.

a) Sigursteinn tók til máls og sagði að nú væri tækifæri fyrir meðlimi að tjá sig um klúbbinn og að leggja fram spurningu fyrir stjórn.

b) Kristmann Pálmason þakkaði Sigursteinni fyrir vel unnin störf í þágu klúbbsins. Einnig þakkaði Kristmann Gunnari fyrir sín störf.

c) Spurning kom frá fundargesti vegna hækkun á verði á hópferðum klúbbsins. Sigursteinn tók til máls og svaraði því að það hefði ekki alltaf gengið eftir að fá alla þá miða sem klúbburinn hefði óskað eftir. Það hefði valdið því að útvega þurfti miða sem væru dýrari heldur en þeir sem klúbburinn fengi. Í stað þess að selja fyrst miða sem klúbburinn útvegaði ódýrari og hina þá dýrari var farinn sú leið að deila miðaverðinu niður á allan hópinn. Þegar farið er í hópferð þá er kannski verið að fylla flugvél sem tekur 150-180 í sæti. Og ef klúbburinn fær ekki miða fyrir allan hópinn þá verði að útvega fleiri miða til að fylla uppí flugvélina.

d) Gunnar Gunnarsson þakkaði mönnum fyrir samstarfi í gegnum árin.

e) Jón Óli Ólafsson tók til máls og tjáði mönnum að mjög erfiðlega hefði gengið að útvega miða á Anfield þetta tímabilið. Mjög mikil ásókn hefur verið í miða á leiki Liverpool þetta tímabil. Klúbburinn hefði ekki getað útvegað öllum þeim meðlimum sem óskuðu eftir miðum í gegnum klúbbinn.

f) Sigursteinn þakkaði kærlega fyrir sig enda búinn að starfa í klúbbnum í átta ára. Þakkaði hann öllum þeim sem hann hefði unnið með í þessi ár. Sigursteinn óskaði nýrri stjórn velfarnaðar á komandi tímabili.

g) Jón Óli Ólafsson tók þá til máls og þakkaði Sigursteini kærlega fyrir vel unnin störf í þágu klúbbsins. Jón Óli færði síðan Sigursteini gjöf fyrir hönd klúbbsins en það er ferð fyrir tvo til Liverpool.

Fundarstjóri tók til máls og sagði að nú værum fundurinn kominn á leiðarenda. Fundarstjóri gaf síðan Jón Óla orðið.

Jón Óli þakkaði fundargestum komuna og sleit aðalfundinum.

Fundi slitið klukkan 20:54

Fundarritari: Jón Óli Ólafsson

TIL BAKA