Aðalfundur 2005

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi
haldinn á Players þann 14.maí 2005 klukkan 14:00

Dagskrá aðalfundar samkvæmt 11.gr laga klúbbsins
1)    Kosning fundarstjóra og fundarritara
2)    Stjórn leggur fram skýrslu fyrir yfirstandandi starfsár.
3)    Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga
4)    Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
5)    Lagabreytingar, löglega fram bornar
6)    Kosning formanns til tveggja ára
7)    Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára
8)    Kosning tveggja varamanna til eins árs
9)    Kosning endurskoðanda
10)    Ákvörðun um árgjald
11)    Önnur mál


1)    Sigursteinn Brynjólfsson tók til máls og mælti með Guðmundi Péturssyni sem fundarstjóra og að fundarritari yrði Jón Óli Ólafsson. Voru þeir kosnir með lófa taki.

2)    Sigursteinn Brynjólfsson greindi frá skýrslu stjórnar. Í upphafi þessa tímabils var enn verið að halda uppá 10.ára afmæli klúbbsins. Klúbburinn gaf út bók í samvinnu við Design. Bókin fjallar um Liverpoolklúbbinn síðustu 10 ár. Safnstjóra Liverpool FC var sýnd þessi bók og átti hann ekki orð yfir hversu vel unnin bókin var. Hallgrímur Indriðason var ritstjóri fyrir hönd klúbbsins. Klúbburinn sendi síðan öllum félagsmönnum sérstaka 10.ára afmælisnælu. Klúbbfélagar fengu að venju barmmerki félagsins með desember sendingu klúbbsins. Ný hönnun á dagatali klúbbsins var í höndunum á Sigurði Reynissyni.
Mannabreytingar urðu í stjórnklúbbsins þegar Kristmann Pálmason hætti og þar með urðu breytingar á verkaskiptingu. Jón Óli Ólafsson hætti sem ritstjóri Rauða Hersins og tók við miðamálum og varð einnig ritari klúbbsins. Markús Einarsson hætti sem ritari og tók við starfi gjaldkera. Hallgrímur Indriðason tók að sér ritstjóra fyrir Rauða Herinn.
Klúbburinn fór í tvær stórar og eina litla ferð á Anfield. Og er ekki annað hægt að segja að þær hafi heppnast stórkostlega.
Starfssemi klúbbsins skiptist í þrjá megin hluta: Rauði Herinn, vefsíðan liverpool.is og ferðir á Anfield.
Jósep Svanur Jóhannesson hefur haft veg og vanda með félagsskráningum, Sigurður Hjaltsted hefur haft umsjón með auglýsingamálum klúbbsins. Markús Einarsson hefur séð um fánadaga á Akureyri. Sigurður Reynisson hefur haft umsjón með forsíðu Rauða Hersins og Dagatalinu ásamt ýmsum smáverkum.
Barnaárshátíð tókst mjög vel og eiga þeir sem sáu um hana þakkir skildar. Jósep Svanur Jóhannesson bar hitan og þungan af árshátíð klúbbsins um kvöldið, um 70 manns mættu á árshátíðina. Liverpoolklúbburinn fékk heimsókn frá Liverpool á árshátíðina er Pete Sampara, heiðursfélagi í klúbbnum, kom og heiðraði klúbbinn með nærveru sinni. Pete Sampara er víst ennþá með stórt bros eftir heimsóknina til Íslands. Að lokum þakkaði Sigursteinn öllum þeim sem lögðu klúbbnum lið á liðnu starfsári.

3)    Markús Einarsson lagði fram reikninga klúbbsins. Rekstrartekjur klúbbsins voru 6.703.436 krónur. Rekstrargjöld voru 6.209.144. Rekstrarhagnaður var því 494.292 krónur. En hagnaður af starfssemi klúbbsins var 520.347 krónur með fjármunatekjum. Aðrar tölur er að finna í ársreikning Liverpoolklúbbsins sem lagt var fram á aðalfundi.
Endurskoðandinn Birgir Grétar Haraldsson samdi ársreikninganna eftir bókhaldi félagsins og upplýsingum stjórnenda.

4)    Sigursteinn tók til máls og sagði að auglýsingatekjur hafi aukist til muna. Þó eigi eftir að greiða fyrir næsta blað klúbbsins og lokagjöf sem meðlimir fá með næstu sendingu.
Markús vildi benda á eitt í reikningum klúbbsins en það er húsnæðisliðurinn. Þetta húsnæði væri notað sem fundarstaður fyrir stjórn ásamt því að vera geymsla fyrir margs konar dót sem klúbburinn hefur safnað að sér í gegnum árin.
Spurt var útí ferðakostnað. Sigursteinn svaraði því að þetta væru ferðir sem farnar væru tvisvar á ári. Þá væri farið á undan hópferð og ferðin væri notuð í þeim tilgangi að safna efni fyrir Rauða Herinn. Þessi kostnaður væri t.d lestarferðar, leigubílar og annað sem tilfellur.
Reikningar Liverpoolklúbbsins samþykktir samhljóða.

5)    Engar lagabreytingar lágu fyrir þennan fund

6)    Kosning formanns. Formaður klúbbsins var kosinn í fyrra og því er ekki kosið um hann á þessum aðalfundi. Hann situr því í eitt ár til viðbótar.

7)    Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Þrír voru í framboð: Jón Óli Ólafsson, Hallgrímur Indriðason og Jósep Svanur Jóhannesson. Engir aðrir buðu sig fram og voru þeir þrír því sjálfkjörnir.

8)    Kosning tveggja varamanna til eins árs. Eftirtaldir aðilar buðu sig fram: Sigurður Reynisson, Guðmundur Hreiðarsson, Brynjar Þór Elínarson og Benedikt Jón Sigmundsson.
Kjörseðlum var dreift til fundargesta. Eftir talningu var ljóst að Sigurður Reynisson og Benedikt Jón Sigmundsson höfðu hlotið kosningu sem varamenn til eins árs.

9)    Tillaga um að Birgir Grétar Haraldsson haldi áfram sem endurskoðandi Liverpoolklúbbsins. Fleiri tillögur komu ekki og því var hann sjálfkjörinn til eins árs.

10)    Ákvörðun um árgjald. Stjórn Liverpoolklúbbsins sér enga ástæðu til þess að hækka árgjaldið og leggur til að árgjaldið fyrir komandi tímabil haldist óbreytt. Tillaga um óbreytt árgjald samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

11)    Fundarstjóri sagði að orðið væri laust og nú væri tíminn til þess að spyrja stjórnarmennina.

a)    Sigursteinn tók fyrst til máls og sagði að aðalfundurinn væri sá vettfangur fyrir meðlimi til að tjá sig um klúbbinn og að spyrja stjórnarmenn ef þeir hefðu einhverjar spurningar.
b)    Spurning kom frá fundargesti hvort allir þeir sem væru á þessum aðalfundi væru meðlimir í Liverpoolklúbbnum? Sigursteinn svaraði þeirri spurningu játandi.
c)    Spurt var hvað auglýsendur fengu fyrir sinn snúð og hvort þeim væri boðið til Liverpool? Sigursteinn svaraði því að þeir fengu auglýsingu í Rauða Herinn ásamt liverpool.is. Þegar einhver frá klúbbnum væri í sjónvarpi að kynna klúbbinn þá væri nefnt á nafn þá aðila sem styrkja klúbbinn. Auglýsendum væri ekki boðið til Liverpool á kostnað klúbbsins. Markús tók einnig til máls og sagði að allir samningar væru gerðir yfir sumar mánuðina og að þeir væru gerðir til eins árs. Þetta létti mikið þeirri vinnu að vera að harka auglýsingar þegar tímabilið væri hafið.
d)    Spurt var hvort ferðaskrifstofan Úrval Útsýn væri ekki að smyrja óvenju mikið á ferðina til Istanbul? Sigursteinn svarði þessu og sagði að ÚÚ væri ekki að leggja mikið á þetta. Miðaverð væri hátt milli 25-30.000 krónur. Hótelverð hafi hækkað uppúr öllu valdi. En stærsti parturinn væri flugferðin frá London til Istanbul. En það mætti áætla að sá kostnaður væri í kringum 70.000 krónur. Ekki má gleyma að inní þessu verði eru rútur til og frá flugvelli ásamt rútu til og frá leikvanginum.
e)    Er hægt að kaupa 10.ára afmælisbókina sem klúbburinn gaf út? Hallgrímur benti fundarmönnum á að hafa samband við Design. Sigursteinn svaraði einnig og sagði að Liverpoolklúbburinn hafi ekki haft neina peningalega ábyrgð á útgáfu bókarinnar, það hefði verið í höndunum á Design.
f)    Hvenær kemur næsta tölublað af Rauða Hernum? Hallgrímur svaraði því til að næsta tölublað kæmi út 15.júní.
g)    Spurning kom frá fundarmanni um hver væru framtíðarplön Liverpoolklúbbsins? Sigursteinn svaraði því til að þetta væri þannig að hugsað væri um eitt ár í einu, eða réttara sagt eitt tímabil í einu.
h)    Spurning um miðamál var borinn upp af fundarmanni. Jón Óli svaraði því. Jón Óli sagði að klúbburinn væri með einstakt samband við miðasöluna úti. Það kannski sæist best á því að klúbburinn hefur farið í þrjár ferðir með allt að 150 manns í tveimur stærstu ferðunum. Einnig hefur klúbburinn aðstoðað meðlimi með að útvega miða á Anfield. Það má segja að á hverjum heimaleik Liverpool sé einhver Íslendingur. Fyrirkomulagið með að fá miða á Anfield er einfalt. Klúbburinn þarf allt að 6 vikna fyrirvara til þess að útvega miða. Í flestum tilfellum er komið svar 4 vikum fyrir leikinn. Hver miði kostar meðlimi 5.000 krónur og að hver meðlimur getur keypt einn miða. Að því gefnu að meðlimur hafi greitt árgjaldið.
i)    Guðmundur Hreiðarsson tók til máls og vildi að fundarmenn gæfu stjórn klúbbsins gott klapp fyrir vel unnin störf á liðnu tímabili. Fundarmenn stóðu upp og klöppuðu fyrir stjórn klúbbsins.


Fundarstjóri tók til máls og sagði að nú værum fundurinn kominn á leiðarenda. Fundarstjóri sagði að honum fyndist stjórn klúbbsins vera standa sig með miklum ágætum. Fundarstjóri gaf síðan Sigursteini orðið.
Sigursteinn þakkaði þeim sem mættu á aðalfundinn og ánægjulegt að sjá að þeir sem mættu á fundinn höfðu ýmislegt til máls að leggja. Sigursteinn var ánægður með starfið í vetur og þakkaði öllum sem lögðu hönd á plóginn. Einnig bauð Sigursteinn Benedikt velkominn til starfa. Sigursteinn sleit síðan fundinum og fundarmenn klöppuðu.

Fundi slitið klukkan 15:12
Fundarritari: Jón Óli Ólafsson



 
TIL BAKA