Forsíða

Aðalfundur 2003

Fundargerð aðalfundar Liverpoolklúbbsins á Íslandi, haldinn á Ölveri sunnudaginn 11. maí 2003 kl. 16:00.

Fundarsetning.

Sigursteinn Brynjólfsson, formaður Liverpolklúbbsins, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Guðmundur Pétursson var kjörinn fundarstjóri og Markús Einarsson fundarritari.

Skýrsla stjórnar.

Sigursteinn Brynjólfsson flutti skýrslu stjórnar. Í henni kom m.a. fram.:

- alls voru haldnir 24 bókaðir stjórnarfundir á árinu.
- stjórnin skipti þannig með sér verkum:
o Varaform: Jósep Svanur Jóhannesson
o Gjaldkeri: Kristmann Pálmason
o Ritari: Markús Einarsson
o Meðstjórnendur: Jón Óli Ólafsson og Hallgrímur Indriðason
- Jósep Svanur hætti í stjórn í byrjun september og tók þá Hallgrímur Indriðason við starfi varaformanns.
- Jón Óli Ólafsson var skipaður ritstjóri Rauða Hersins. Alls komu út 4 tölublöð af Rauða Hernum á tímabilinu.
- mikil áhersla var lögð á að fjölga félögum í klúbbnum. Í því skyni var settur af stað svokallaður hvataleikur. Í lok tímabilsins eru félagsmenn um 1500 talsins og hafa þeir aldrei verið fleiri.
- alls var farið í 4 ferðir til að fylgjast með leikjum og var þátttaka í þeim mjög góð. Þrjár þessara ferða voru tveggja leikja ferðir. Sem fyrr voru ferðirnar skipulagðar í samvinnu við Úrval / Útsýn.
- Jólagjöf ársins var geisladiskur þar sem þjóðkunnir tónlistarmenn komu fram. Auk geisladisksins fengu félagsmenn sent dagtal og nælu klúbbsins um áramótin.
- heimasíðan – liverpool.is - er sem fyrr mikilvægasti upplýsingamiðill klúbbsins. Mikil aðsókn er að síðunni og þegar best lét fékk hún um 3.000 heimsóknir á dag. Síðan var tilnefnd til verðlauna í tveimur flokkum þegar íslensku vefverðlaunin voru afhent. Umsjónarmenn síðunnar voru Arngrímur Baldursson, ritstjóri og Guðmundur Magnússon, vefstjóri.
- alls voru haldnir 8 fánadagar á árinu og voru þeir mjög vel sóttir. Fjórir þessara daga voru haldnir í Reykjavík og fjórir úti á landi.
- árshátíð klúbbsins var haldin í byrjun mars og var hún að vanda vel sótt. Sem fyrr var hátíðin tvískipt. Fyrri partin var haldin barna- og unglingahátíð en um kvöldið var fullorðinshátíðin haldin.
- Magnús Ólafsson var tilnefndur heiðursfélagi klúbbsins á árshátíðinni.
- á árinu átti klúbburinn í miklum samskiptum við fjölda aðila. Má þar m.a. nefna Vífilfell / Carlsberg, Reekok umboðið, Úrval-Útsýn, Prisma – Prentco, Jóa Útherja, Champions Café, Sýn og Ölver. Voru þessum aðilum færðar bestu þakkir fyrir samstarfið.

Reikningar Liverpoolklúbbsins.

Sigursteinn Brynjólfsson kynnti reikninga klúbbsins. Í þeim kom fram að tekjur klúbbsins á starfsárinu voru 5.719.465 kr. og hagnaður af rekstri nam 406.750 kr.
Eignir klúbbsins 30. apríl 2003 námu alls 1.532.598 kr.

Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.

Undir þessum lið var m.a. rætt um hvernig staðið hefði verið að boðun þessa aðalfundar. Frummælanda þótti fundarsókn léleg og dró í efa að rétt hefði verið að málum staðið. Einnig var spurst fyrir um hvort fundurinn væri ályktunarhæfur þar sem ekki fleiri voru mættir.

Fundarstjóri staðfesti að löglega hefði verið boðað til fundarins og þar með væri hann löglegur.

Eftir þessar umræður voru reikningar og skýrsla stjórnar borin upp til atkvæða og voru reikningarnir og skýrslan samþykkt samhljóða.

Lagabreytingar.

Fyrir fundinum lágu tillögur stjórnar um mjög viðamiklar breytingar á lögum Liverpoolklúbbsins og höfðu þær verið kynntar félagsmönnum á heimasíðu klúbbsins.

Á fundinum voru bornar fram breytingartillögur við 3 greinar tillagnanna. Voru þær samþykktar samhljóða. Síðan voru allar greinar nýju laganna samþykktar samhljóða og að lokum voru lögin í heild sinni samþykkt samhljóða. Nýju lögin er unnt að sjá á heimasíðu klúbbsins – liverpool.is

Kosning stjórnar.

Áður en gengið var til kosninga hvatti Sigursteinn Brynjólfsson fundarmenn til að gefa sig fram til starfa fyrir klúbbinn. Einnig minnti hann á þau fjölmörgu verkefni sem framundan væru.

Í nýsamþykktum lögum klúbbsins er m.a. tekið fram að á hverjum aðalfundi skuli kjósa 3 stjórnarmenn í senn til tveggja ára. Þar sem nú var verið að kjósa eftir þessum lögum í fyrsta sinn samþykkti fundurinn samhljóða afbrigði við hin nýju lög og var ákveðið að kjósa einn stjórnarmann til eins árs auk hinna þriggja sem kosnir voru til tveggja ára.



Eftirtaldir buðu sig fram til næstu tveggja ára. Atkvæðatölur við kosningar innan sviga:

Jón Óli Ólafsson ( 21 )
Sigurður Hjaltested ( 12 )
Jósep Svanur Jóhannsson ( 17 )
Hallgrímur Indriðason ( 14 )
Henrik Thorarensen ( 6 )
Gunnar Gunnarsson ( 5 )

Jón Óli, Svanur og Hallgrímur voru því réttkjörnir í stjórn Liverpoolklúbbsins til tveggja ára.

Eftirtaldir buðu sig fram til setu í stjórn til eins árs. Atkvæðatölur við kosningar innan sviga:

Sigurður Hjaltested ( 13 )
Gunnar Gunnarsson ( 11 )

Sigurður var því réttkjörin í stjórn Liverpoolklúbbsins til eins árs.

Eftirtaldir buðu sig fram til setu í varastjórn til eins árs:

Gunnar Gunnarsson
Bergvin Gíslason

Þar sem ekki fleiri buðu sig fram eru þeir báðir réttkjörnir sem varamenn í stjórn Liverpoolklúbbsins til eins árs.

Kosning endurskoðanda: Stungið var upp á Birgi Haraldssyni og var hann kjörinn samhljóða.

Ákvörðun árgjalds.

Stjórn Liverpoolklúbbsins gerði tillögu um að árgjaldið yrði hækkað í 2.500 kr., en það hefur verið 2.000 kr. sl. 3 ár. Sigursteinn Brynjólfsson gerði grein fyrir ástæðum þessarar tillögu. Þar kom m.a. fram að fyrirsjáanlegt væri að póstburðagjöld myndu hækka á næsta starfsári og einnig hefur komið fram áhugi á að leggja meira í tímarit klúbbsins, Rauða Herinn.

Nokkrar umræður fóru fram um tillöguna en hún samþykkt með þorra atkvæða
gegn 3.

Önnur mál.

Henrik Thorarensen spurðist fyrir um hversu margar konur væru í klúbbnum. Hann gagnrýndi stjórnina fyrir hversu léleg mæting væri á fundinn og að enginn kona hefði séð ástæðu til þess að mæta. Jafnframt hvatti hann nýkjörna stjórn til að virkja betur kvenfólkið í klúbbnum.

Sigurður Reynisson þakkaði stjórninni fyrir vel unnin störf á tímabilinu og sagði jafnframt að aldrei hefði verið meiri kraftur í klúbbnum heldur en á nýafstöðnu tímabili.

Fundarstjóri, Guðmundur Pétursson, þakkaði fundarmönnum góða fundarsetu og árnaði nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum.

Sigursteinn Brynjólfsson þakkaði mönnum fyrir góðan og málefnalegan fund. Ennfremur bauð hann nýja stjórnarmenn velkomna til starfa.

Að því búnu sleit hann fundi kl 18:10.

Markúa Einarsson
Fundarritari.

Til baka

Leikjahornið

Leikur Úrslit
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin